Fyrsta djammiđ!
Jæja... hvað segiði fólk! hitabylgja á Íslandi þýðir nottlega bara að það er ekki gott veður hérna í Danmark, rigning og vesen. Þýðir ekki að þræta það!
Ég tékkaði á djamminu núna um helgina, allveg nóg um að gerast hérna, merkilega margir staðir miðað við stærðina á bænum allavega! En!! það er eitt sem ég vill setja útá.. það er tónlistin! annaðhvort 80' dauðans eða 60'... heyrði ekkert annað, mjög skrítið. að vísu fór ég ekki á alla staðina...maður tékkar betur á þessu seinna.
Lennti í einu fáránlegu, var á leiðinni inná einn staðinn, var maður ekki stoppaður af dyravörðum! ég bara "jaaájá hérna er ID", og hann svaraði strax "nei, sorrý.. það er 24 ára inn!". ég var allveg HEY!! (ég er sko 23 fyrir þá sem ekki vita) hvaða kjaftæði er þetta maður!! og labbaði bara í burtu, ekki sáttur!! fór bara og fékk mér Kebab, fúll á'þí.
Meðan ég man! djöfull drakk maður! við vorum 2, ég og Siggi. Drukkum stóra Smirnoff, nokkra bjóra, Opal snafs (rúmlega hálf flaska) og all nokkur glös af Gini, samt var maður bara nokkuð rólegur, allveg súrt, kannski er það þessi Dana-drykkja hjá manni á bjór.. hmm, kannski.
Já, og allveg rétt, ég gekk seinna framhjá staðum sem vildi ekki hleypa mér inn, það stendur utaná húsinu að það er 24 ára inn á laugard. :) ...hlaut að vera, næstum kominn rasismi upp í manni.
Viva Barcelona!!!
Dýragarđur og Legoland
Fórum fyrst í þennan dýragarð í Giveskud, þetta er svona dræfþrú garður sem líka er hægt að leggja bílnum og skoða dýrin í gegnum rimla. Byrjuðum á að keyra hringinn, sáum gíraffa og hvað þetta nú heitir allt, voða fínt. lögðum síðan bílnum, þá sáum við górillur og fíla...fórum garðinn í þvíílíkri steik! að hálfa væri nóg.. eftir smá röllt vorum við orðin freeekar þreytt, svo við aftur í fína bílaleigubílinn okkar... AUDI 2006 árg. með loftkælingu! "hey, fyrst við erum komin í bílinn, tökum annan hring í garðinum!" sagði viktor.. ókey, við gerðum það... ekkert að stressa okkur. bíll við bíl alla leiðina, orðið frekar mikið af fólki þarna í garðinum. svo við fórum yfir hægt, svo þegar við komum á svæðið með gíröffunum og sebrahestunum tókum við eftir að hópur sebrahesta voru í einhverju svaaakalegu flippi, spörkuðu í loftið og eltandi hvern annan með læti og alles, við öll nottlega bara "uhh... vá!"
...en! tóku þeir ekki stefnuna á alla bílalestina!! við föst í röðinni sem var stopp í augnablikinu, Sebrarnir fóru rétt framhjá einum bílnum langt fyrir framan okkur.. en hlupu síðan í kringum hann, og tóku síðan gott svig á milli bílanna allra í átt að okkur! við nottlega bara "neeeeeei!! við erum á NÝJUM audi sem við eigum ekki einusinni!!!" 2sek seinna brunuðu þeir framhjá bílnum okkar með tilheyrandi steinakasti og 'tagl-í-bílinn' hljóðum. Viktor afturí var ennþá að skrúfa upp rúðuna sína (ekki rafdrifin) í geðveiku stressi og fékk nokkra steina á sig. díses!
eftir að Sebrarnir voru farnir framhjá okkur stóð Snorri kerruna bara eins og enginn væri morgundagurinn og við fórum framhjá all nokkrum bílum, tók eftir að margir horfðu á okkur og brostu. HEY þið eruð ekki á nýjum Audi!! svo fökkjú! hugsaði ég bara...
myndir eru hægt að nálgast hérna vinstra megin í 'myndir' og myndir 2'
Mit Fřrste Blogg !!
Jæja, loksins að maður kemst á netið!
[05:30] Mætt á völlinn, nokkuð hress öll, byrjuðum á þessu vanalega, kaffiterían- Fríhöfnin- og allt það, fljótlega kom í ljós að seinkun var á fluginu okkar, jeijj! Þetta varð að 4ra tíma seinkun!!, ég sofnaði á vellinum eins og venjulega, en að vísu náði ég mér ekki í gólfflísarfar (..smáeinkahérna..)
[11:15] Fjórum tímum liðnum var kallað inn í flugvélina, orðin nett pirruð á því -strax- og öll ferðin framundan. Á leiðinni í flugélina tókum við eftir sveittum, skítugum, og bliiiiiiindfullum rússum/pólverjum. “Týbískt að þeir setja við hliðina á OKKUR” heyrði ég einhvern af okkur segja... viti menn, jújú, þeir sátu hjá okkur Sigga, og þvíílíkur fnykur! Áfengis-svita-ryk-rússa-Fíla dauðans! Siggi reddaði þessu.. bauð manni uppá Grand Mariner, (vúbbdídú!) eftir fyrstu flöskuna var maður allveg búin að gleyma fnyknum.
[16:15] Tæpum 3 tímum og ca. 8 Grand Mariner flöskum seinna lentum við á Kastrup. Þegar maður fattaði að Danirnir eru tveimur tímum á undan ákváðum við að drífa okkur að finna miða í lestina til Vejle, fundum síðan að sjálfsögðu út að lestin mundi ekki fara nærri því strax.. ..meiri bið hjá okkur.
[18:32] Lestin átti að stoppa á Spori 1, en neinei ekki í þetta eina skipti.. öllum að óvöru, svo við (4 fullorðnir, 2 börn og milljón töskur), hlupum af stað í sjúku panikki á réttan stað, fundum vagninn (Spor 2), byrjuðum að hlaða lestina (vá.. “hlaða lestina”) og fljótlega voru allir sestir niður nema við.. helmingurinn að okkar töskum ennþá fyrir utan og maður byrjaði að söngla í hausnum “leeeestin eeeer að faaaaaara”, sviti spratt eins og manni væri borgað fyrir það. Fljótlega komst þetta allt inn, og maður fór að koma sér í sætið, en Snorri (sem var sestur með börnin) sá að einn bakpoki var eftir á pallinum, (pokinn var með öll vegabréfin, heimilisföng og símanúmer ofl. S.s. eini pokinn sem mátti EKKI týnast). Snorri fékk eitthvað móðursýkistkast og tók einhverskonar bringusundstök yfir farþegana til að komast út og ná í töskuna, en Siggi (síðastur inn) sá töskuna og reddaði þessu.. ..fúffff.. Snorri feginn en náði sér í eitthvað gott sár á löppina útúr þessu. Lestin leggur af stað og við öll með svona <ahhhh Loksins> svip á okkur. Biðum síðan eftir komunni til Vejle, spennt en þreytt...
[22:10] Loksins komum við á Hostellið í Vejle (sem við pöntuðum á netinu) en á hurðinni stóð “lokar klukkan 20:00, en hægt að ná í síma til klukkan 22:00” VEEI!! Allt að ganga upp hjá okkur... búið að vera á ferðalagi síðan hálf fimm um morgunninn, nokkurnvegin ekkert búið að ganga upp hjá okkur, reyndum að hringja í þennan síma, en enginn svaraði... prófuðum að banka, náðum loksins í einhverja danska konu (gest) þarna sem hjálpaði okkur, náði að hringja og talaði við eigandan, reddaði okkur. ffjjjjjúúúff!!!
Langi ferðadagurinn á enda runninn.. sofnuðum í 3ja koju herbergi sem var á stærð skókassa. 14 tíma og 40 mín, ferðalag að baki.. ..loksins!